Ómerkt leið, víða mjög brött, ísöxi og mannbroddar nauðsynlegt nema um hásumar. Gengið frá Skíðastöðum, upp með skíðalyftunum, svo í norður frá efstu lyftunni að Mannshrygg.
Fara má upp bratta fönn sunnan í hryggnum eða klifra upp hrygginn að austan upp á Hlíðarfjall. Þaðan er gengið til suðvesturs vestan á Hlíðarfjalli, niður á Vindheimajökul norðaustan við Strýtu og svo upp norðausturhrygg Strýtu á hátindinn.
Geysivíðsýnt af tindinum í björtu veðri.
Heimild, ofangreint: Glerárdalur, gönguleiðakort.
Útgefandi: Ferðafélag Akureyrar – vefsíða.