Ómerkt leið, fyrst er gengið niður að Glerá innanvert við Lamba þar sem oftast er hægt að vaða yfir ána. Þaðan er gengið upp hlíðina vestan Glerár upp á Hrútaskeið og vestur í skarðið milli Steinsfells og Tröllatinds. Þaðan niður Bægisárjökul og út Bægisárdal að Syðri-Bægisá.
Ofangreind heimild: Glerárdalur, gönguleiðakort.
Útgefandi: Ferðafélag Akureyrar – vefsíða