Vinsælt til göngu enda af því ljómandi gott útsýni til höfuðborgar og fjalla í norðri og austri. Við beygjum út af Suðurlandsvegi og stefnum að malarnámum í mynni Jósepsdals. Þar leggjum við bílnum við nokkuð greinilegan stíg sem liggur upp á hrygg sem kemur úr austanverðu fjallinu.
Stígurinn er augljós alla leiðina upp en fyrri hlutinn er nokkuð beinn en í seinni hlutanum göngum við í góðum sveig á toppinn. Mikilvægt er að fylgja sömu leið tilbaka því fjallið er nokkuð bratt á allar hliðar.
Vífilsfell (655 m.y.s.) er stundum sagt vera nyrsta fjall Bláfjalla en virðist þó standa nokkuð stakt. Efsti hluti fjallsins er móberg en fjallið er talið hafa myndast á síðasta jökulgosi, líklega í nokkrum eldgosum.
Fjallið er nefnt eftir Vífli leysingja Ingólfs Arnarsonar. Hann bjó á Vífilsstöðum og skokkaði á fjallið til að gá til veðurs. Ef vel viðraði skokkaði hann út á Gróttu þaðan sem hann réri.
Þrátt fyrir að vera nokkuð létt uppgöngu er á einum tveimur til þremur stöðum smá klettahöft sem gæti þurft að nota hendur til að styðjast við. Ætti það þó engum að vera mikil hindrun haldi menn sig á stígnum. Á toppnum er útsýnisskífa sem Ferðafélag Íslands setti upp.