Farið frá Ærlæk skammt neðan við Skóghlíð, upp með Rangá og inn á Rangárhnjúk en það sér vel yfir Hérað. Frá Rangárhnjúk eru um 3 km. niður að Fjallseli (N66°17’800 og V14°34’290). Þar má enda ferðina eða ganga aftur tilbaka sömu leið.
Ofangreind heimild: Gönguleiðir á Austurlandi VI
Útgefandi: Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Vefsíða: www.east.is