Óvörðuð leið frá þjóðvegi við Arnkelsgerði yfir fjallgarðinn rétt norðan Hattar og um Launárdal að sæluhúsinu á Fagradal. Mesta hæð um 1000 m.y.s.
Stutt er að ganga á Hött (1.106 m.) af leiðinni en þaðan er frábært útsýni yfir Fljótsdalshérað. Af þessari leið má fara snarbratta leið niður að Hjálpleysuvatni og niður með Gilsá.
Ofangreind heimild: Gönguleiðir á Austurlandi VI
Útgefandi: Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Vefsíða: www.east.is